4. flokkur karla lék í gær gegn Hrunamönnum og fór leikurinn fram á Flúðum. Okkar strákar skoruðu fyrsta mark leiksins og voru yfir í hálfleik 0:1. Heimamenn skoruðu síðan tvö mörk í röð í síðari hálfleik en Þorkell Máni náði að jafna leikinn rétt fyrir leikslok og niðurstaðan því jafntefli 2:2. Þess ber að geta að Þorkell Máni skoraði bæði mörk Hamars/Ægis.
Næsti leikur 4. flokks er á föstudag en þá spilar 7 manna liðið gegn Álftanesi og fer leikurinn fram í Hveragerði.
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/PICT0386_thumb.JPG