Meistaraflokkur karla fékk lið KFR í heimsókn í kvöld. Þetta var síðasti heimleikur liðsins á tímabilinu og því mikilvægt að landa sigri.
Í fyrri hálfleik réðu okkar menn gangi leiksins. Gestirnir sköpuðu sér fá færi og mörk frá Junior og Sæla komu okkur í góða stöðu í hálfleik, 2:0. En gestirnir komu einbeittir til leiks í síðari hálfleik en talsvert vantaði uppá kraft okkar manna. KFR minnkaði muninn á 60.mín. eftir mistök í vörn Ægismanna. Á 85. mín. fékk Ægir síðan vítaspyrnu sem þeir náðu ekki að nýta. Það var síðan á lokamínútu leiksins að gestirnir jöfnuðu og leiknum lauk með jafntefli 2:2.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/stuffið_thumb.JPG