Leikur meistaraflokks í kvöld gegn Ými hefst kl. 19:00 í stað 20:00 eins og verið hefur í sumar. Það er venja í ágúst að gera þessa breytingu þar sem farið er að dimma á þessum árstíma.
Eftir nokkur jafntefli undanfarið og tap í síðasta leik er komin tími á sigur hjá strákunum og þurfa þeir því á góðum stuðningi að halda. Fjölmennum því á völlinn í kvöld og styðjum Ægismenn. Síðan er tilvalið að skella sér á tónleika í Ráðhúsinu eftir leikinn.
Leikur meistaraflokks kl. 19:00
10. ágú 2007
| umsjon