5. flokkur karla lék í dag gegn Álftanesi og fóru leikirnir fram hér í Þorlákshöfn. A liðið byrjaði og var leikurinn jafn og spennandi. Staðan í hálfleik var 1:1 en einbeitinarleysi í upphafi síðari hálfleiks kostaði okkar menn tvö mörk. Strákarnir náðu að minnka munin í 2:3 í lok leiks en náðu ekki að bæta við öðru marki. Niðurstaðan því 2:3 fyrir gestina.
Leikur B liðsins var ekki síður spennandi. Liðin skiptust á að sækja og hafa frumkvæði í leiknum en það voru okkar strákar sem skoruðu eina mark fyrri hálfleiks. Mikil spenna var allan síðari hálfleik og fengu bæði lið góð færi. En gestirnir náðu að jafna þegar ein mínúta var til leiksloka og því lauk leiknum með jafntefli.
Næsti leikur 5. flokks er á mánudaginn gegn Hamri í Hveragerði.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5.karla gegn Álftan/HPIM1305_thumb.JPG
Image URL: 5.karla gegn Álftan