Tap hjá meistaraflokk í Hveragerði

1. ágú 2007

| umsjon

Tap hjá meistaraflokk í Hveragerði

Meistaraflokkur karla tapaði sínum fyrsta leik síðan í annari umferð í gærkvöldi þegar liðið lék gegn Hamri í Hveragerði.  Ægismenn voru heldur sterkari í fyrri hálfleik en náðu ekki að nýta færi sín.  Það voru hins vegar heimamenn sem skoruðu eina markið í fyrri hálfleik.  Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum en sem fyrr náðu okkar menn ekki að skora en Hamarsmenn bættu við þremur mörkum.  Niðurstaðan sem sagt 4:0 sigur Hamars.