Jafntefli í grannaslag

6. júl 2007

| umsjon

Jafntefli í grannaslag

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn Árborg frá Selfossi.  Leikurinn var jafn og spennandi en okkar menn leiddu í hálfleik 1:0 en það var Milos sem skoraði með laglegu skoti.  Í seinni hálfleik náðu gestirnir að jafna úr víti á 52. mín. en Milos koma Ægi aftur yfir þegar hann skorðaði sitt annað mark úr vítaspyrnu.  En Árborgarmenn náðu að jafna leikinn þegar venjulegur leiktími var liðinn og jafntefli því niðurstaðan.  
Talsvert var af áhorfendum á leiknum og skemmtu þeir sé vel í blíðskapar veðri.  Næsti leikur meistaraflokks er gegn Gróttu fimmtudaginn 12. júlí.