Við fórum í Borgarnes um nýliðna helgi og kepptum þar í flokki A – liða og B – liða. Okkar piltar fóru hamförum á mótinu. A – liðið endaði í 2. sæti og B – liðið í 1. sæti. Það má segja það að þetta mót hafi verið alltof létt fyrir okkar lið…….. Nei maður er aldrei sáttur….. það þarf að vera spenna til staðar og jafnir leikir. Það var því miður alltof lítið af þeim.
Þema mótsins hjá okkar mönnum var VINÁTTA, vinátta innan vallar sem og utan í hug og verki. Það verður að segjast að það var meira spennandi að fylgjast með því hvernig þemað gengi heldur en flestum þeim leikjum sem við spiluðum.
Með því að smella hér er hægt að skoða myndasyrpu frá mótunu.
Mbkv.
Sveinbjörn
Image URL: /aegirfc/upload/images/Borgarnesmót 2007/PICT0777_thumb.JPG