6. flokkur karla Bónusmót Þróttar

26. jún 2007

| umsjon

6. flokkur karla Bónusmót Þróttar

6. flokkur karla hefur keppt mikið að undanförnu. Hér ætla ég aðeins að fara yfir það hvernig þeim hefur gengið. Bónusmót Þróttar var haldið 9. – 10. júní í Laugardalnum í blíðskaparveðri. Þar fóru okkar menn hamförum og töpuðu ekki leik í mótinu. A- lið okkar keppti sem A-lið…… Þeir stóðu sig með mikilli prýði og náðu 3. sæti í flokki A – liða sem verður að teljast frábært hjá þeim. Þess má geta að A-lið okkar er skipað leikmönnum af eldra árinu og B-lið okkar skipa þeir yngri. B – lið okkar var sett inn í D – liða keppnina, þar sem við erum frá svo litlu bæjarfélagi er ekki reiknað með að við getum verið tvö góð lið………. En B – lið okkar keppti í d- liða keppninni við JAFNALRA sína og gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið. Frábært hjá ykkur strákar.


Image URL: /aegirfc/upload/images/6.flokkur kk/PICT0360_thumb.JPG