KFS – ÆGIR

8. jún 2007

| umsjon

KFS – ÆGIR

8. júní 2007

KFS – ÆGIR 7. júní

Ægismenn gerðu góða ferð út í eyjar, þegar þeir fóru og hirtu öll stigin sem í boði voru. Erfiðlega gekk að spila þennan leik, tvívegis var búið að fresta honum. Einnig þurfti að seinka leiknum um tæpar 30 mín. vegna fremur rólegrar Loftbrúar frá Bakka. Það er skemmst frá því að segja að okkar menn náðu forystu í leiknum í fyrrihálfleik og hefði staðan hæglega getið verið 0-3 í hálfleik. Leikurinn fór fram á Helgafellsvelli. Völlurinn er ekki sá besti á landinu. Byrjunarlið Ægismanna var:
Hlynur í markinu, Ársæll, Jón Reynir, Gunnar B. Ólafsson ( fyrsti leikur ), Gísli aftasta lína.
Miðjan: Örvar, Milo, Gunnar Valberg ( skoraði mark okkar ), Dalibour. Saman frammi voru svo Ari og Ársæll. Á bekknum voru: Halldór, Össi, Davíð Arnar, Áskell og Þorgrímur.
Það má með sanni segja að menn hafi verið sáttir eftir uppskeru kvöldsins.
Áfram Ægir