4. flokkur karla lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í sumar gegn Val á Hlíðarenda. Okkar menn töpuðu 4:2 eftir að staðan var 1:0 í hálfleik. Strákarnir sýndu oft á tíðum góða takta og sköpuðu sér talsvert af færum. Það voru þeir Pálmi Þór og Fannar Haraldur sem skoruðu mörk liðsins.
Á morgun leikur síðan 7 manna liðið gegn ÍR og fer sá leikur fram í Hveragerði og hefst kl. 17:00.
GG
Tap í fyrsta leik hjá 4. flokk karla
7. jún 2007
| umsjon