Nú er heimasíðan komin í loftið eftir miklar breytingar. Á síðunni munum við kappkosta að vera með allar upplýsingar tiltækar fyrir okkar félag. Umsjón síðunnar fer fram í gegnum starfsmenn félagsins, þjálfara, yfirþjálfara, framkvæmdarstjóra og stjórn félagsins. Við munum vera dugleg að taka myndir og skrifa um leikina. Ég vil hvetja foreldra sem eru að taka myndir á leikjum og mótum að koma þeim myndum til okkar til birtingar hér á síðunni. Setjum markið hátt og gerum þessa síðu vel úr garði með að sameina krafta okkar.
Mbkv.
Sveinbjörn
Heimasíðan að öðlast nýtt líf……
4. jún 2007
| umsjon