Æfingar

Þjálfarar:

Bjarni Rúnar og Védis Kolka

Æfingatímar:

Fimmtudagar: kl. 16:15–17:00

Foreldraráð:

Unnur Ásbergsdóttir

Erla Sif Markúsdóttir

Andri Gunnarsson

 

Í 8. flokki æfa drengir og stúlkur saman. Áherslan er fyrst og fremst á gleði, hreyfingu og jákvæða upplifun en ekki sérhæfða knattspyrnuþjálfun. Æfingarnar eru fjölbreyttar og leikrænar og miða að því að börnin öðlist traustan grunn í hreyfifærni og félagsþroska.

Helstu áherslur

  • Fyrstu skref í grunnatriðum knattspyrnu
  • Fjölbreyttar æfingar sem efla almenna hreyfifærni
  • Æfingar sem reyna á fínhreyfingar og grófhreyfingar
  • Jafnvægi, samhæfing og styrkur í gegnum leik
  • Æfingar í stöðvum og litlum hópum
  • Stórir hreyfihringir sem reyna á marga þætti
  • Æfingar settar fram í formi leikja
  • Börnin læra helstu umgengnisreglur í íþróttahúsi
  • Efling félagsþroska og samvinnu
  • Jákvæð upplifun af íþróttaiðkun í forgrunni

Markmið flokksins er að börnin tengi hreyfingu og íþróttir við gleði, öryggi og vellíðan.

Þjálfari:

Torfi

Æfingar:

Miðvikudagar: kl. 15:00–15:45

Föstudagar: kl. 14:10–15:15

Foreldraráð:

Magnús Elfar Thorlacius

Unnur Ásbergsdóttir

Erla Sif Markúsdóttir

Í 7. flokki hefst markvissari knattspyrnuþjálfun, þar sem áhersla er lögð á grunntækni, knattaðlögun og leikræna nálgun. Æfingar fara fram í fámennum hópum og iðkendur snerta boltann sem oftast.

Helstu áherslur

  • Grunnatriði knattspyrnutækni
  • Knattaðlögun og fyrsta snerting
  • Góður agi og umgengni á æfingum
  • Leikgleði og virk þátttaka allra

Tækni

  • Innanfótarspyrnur – þjálfun beggja fóta
  • Móttaka knattar með fæti, ilinni og læri
  • Knattrak með einföldum gabbhreyfingum
  • Einföld gabb og stefnubreytingar
  • Bætt fyrsta snerting og öryggi með bolta

Leikfræði

  • Leikrænir smáleikir (1:1, 2:1, 2:2 o.fl.)
  • Kynning á helstu leikreglum í gegnum leik
  • Samvinna og samskipti í litlum hópum

Markmið flokksins er að byggja upp trausta grunntækni og kenna góða framkomu á æfingum og leikjum.

Þjálfarar:

Torfi og Halldór

Æfingar:

Mánudagar: kl. 15:10–16:10 (THB)

Þriðjudagar: kl. 14:05–15:00 (HSG)

Fimmtudagar: kl. 13:20–14:10 (THB)

Foreldraráð:

Júlía Káradóttir

Inga Jóna Bragadóttir

Hanna Björg

Í 6. flokki eykst kröfustigið og æfingar verða fjölbreyttari. Áhersla er á tækni, samhæfingu og einföld leikfræðileg atriði, aðallega í fámennum leikjum.

Tækni

  • Innanfótar- og ristarspyrnur
  • Spyrnur með höfði úr kyrrstöðu
  • Móttaka knattar á jörðu og í lofti
  • Skjól á knetti og líkamsstaða
  • Knattrak með gabbhreyfingum
  • Snúningar og stefnubreytingar
  • Jafnvægi, taktur og samhæfing
  • Að gera tvennt í einu (t.d. tveir knettir)

Leikfræði

  • Smáleikir (1:1, 2:1, 2:2 o.fl.)
  • Grunnatriði sóknar- og varnarleiks
  • Samvinna, aðstoð og hreyfing án bolta
  • Markskot eftir móttöku
  • Föst leikatriði: innköst, horn og aukaspyrnur
  • Grunnþjálfun markvarða samhliða öðrum æfingum
  • Kynning á leikskipulagi í 5 manna knattspyrnu

Markmið flokksins er að styrkja tæknilega undirstöðu og skilning á einfaldri liðsheild.

Þjálfarar:

Torfi,

Halldór

Védis Kolka

 

Æfingar

Þriðjudagar: kl. 13:15–14:05 (HSG)

Laugardagar: kl. 10:00–11:00 (THB / VKJ)

Foreldraráð:

Þjálfari:

Halldór

Æfingar:

Mánudagar: kl. 15:10–16:10

Fimmtudagar: kl. 14:00–15:00

Föstudagar: kl. 14:05–15:15

Foreldraráð:

Rakel Guðmundsdóttir

Erla Rut Jónsdóttir

Sigríður Steinmóðsdóttir

Í 5. flokki verður þjálfun markvissari og tæknileg breidd eykst. Áhersla er lögð á fjölbreytta tækni, leikskilning og sjálfstraust.

Tækni

Fjölbreyttar spyrnur, með og án pressu

  • Móttaka knattar með öllum líkamshlutum
  • Skjól á knetti og líkamsbeiting
  • Knattrak með gabbhreyfingum
  • Snúningar og hraðabreytingar
  • Samhæfing, jafnvægi og hröð hugsun
  • „Knatt-freestyle“ til að efla sjálfstraust

Leikfræði

  • Smáleikir og leikæfingar
  • Samvinna í sókn og vörn
  • Markskot við fjölbreyttar aðstæður
  • Föst leikatriði
  • Grunnþjálfun markvarða
  • Kynning á leikskipulagi og leikkerfum í 7 manna knattspyrnu
  • Leikstílar: uppbygging, pressa og boltahald

Markmið flokksins er að efla sjálfstæði iðkenda og breiðan tæknilegan grunn fyrir næstu aldursflokka.

Þjálfarar:

Jón Reynir

Nenad

Dimi

Æfingar:

Mánudagar: kl. 18:00–19:00 (JRS / DC)

Fimmtudagar: kl. 15:00–16:00 (DC / NZ)

Laugardagar: kl. 10:00–11:00 (JRS)

Foreldraráð:

Sigríður Vilhjálmsdóttir

Erla Sif Markúsdóttir

Kristín Magnúsdóttir

Í 4. flokki er lögð áhersla á heildstæða knattspyrnuþjálfun, þar sem tækni, leikfræði, líkamleg geta og andlegur styrkur fara saman.

Tækni

  • Fjölbreyttar spyrnur og markskot
  • Móttaka undir pressu
  • Skjól, gabb og snúningar gegn mótherja
  • Knattrak og ákvarðanataka á ferð
  • Samhæfing, jafnvægi og mýkt
  • „Knatt-freestyle“ sem hluti af sjálfstrausti

Leikfræði

  • Sóknar- og varnarleikur í smáum og stærri hópum
  • Maður á mann, svæðisvörn og blandað kerfi
  • Skipulag varnarleiks og pressa
  • Föst leikatriði
  • Sérhæfðari markvarðaþjálfun
  • Leikkerfi í 11 manna knattspyrnu (t.d. 4-3-3, 4-4-2)
  • Leikstílar: lág-, mið- og hápressa, uppbygging leiks

Markmið flokksins er að undirbúa iðkendur fyrir eldri flokka með faglegri, ábyrgri og metnaðarfullri þjálfun.

Þjálfarar:

Jón Reynir

Dimi

Nenad

Æfingar: 

Mánudagar: kl. 18:00–19:00 (JRS / DC)

Fimmtudagar: kl. 15:00–16:00 (DC / NZ)

Laugardagar: kl. 10:00–11:00 (JRS)

 Í 3. flokki eru iðkendur komnir á það stig að þeir eru almennt tilbúnir til að takast á við aukna líkamlega og tæknilega þjálfun. Á þessu aldursskeiði er lögð rík áhersla á markvissa knattspyrnuþjálfun, samhliða því að efla ábyrgð, sjálfstæði og heilbrigðan lífsstíl.

Iðkendur í 3. flokki eru hvattir til að taka aukna ábyrgð á eigin knattspyrnuiðkun, þar með talið þáttum sem snúa að hvíld, næringu, endurheimt og almennri vellíðan.

Hlutverk og ábyrgð

Iðkendur

  • Efla bæði líkamlegan styrk og tæknilega færni
  • Aðlagast auknum kröfum í æfingum og keppni
  • Sýna sjálfstæði, aga og ábyrgð innan og utan vallar

Þjálfarar

  • Efla leikskilning og leikfræði, með aukinni áherslu á 11 manna knattspyrnu
  • Undirbúa iðkendur fyrir afreksmiðaða þjálfun
  • Skapa faglegt, öruggt og uppbyggilegt æfingaumhverfi

Foreldrar

  • Styðja við bakið á barni sínu og liði Ægis
  • Sýna jákvætt viðmót og vera góðar fyrirmyndir
  • Hvetja iðkendur til að axla ábyrgð á eigin þjálfun og framförum

Markmið 3. flokks

  • Að viðhalda áhuga og hvetja iðkendur til að vinna markvisst að markmiðum sínum í knattspyrnu
  • Að efla Ægis stolt:
    • Kynna markmið og gildi félagsins
    • Kynna sögu og menningu Ægis
    • Vera fyrirmyndir fyrir yngri flokka
    • Allir leikmenn í 3. flokki sækja dómararéttindi KSÍ
  • Að bjóða upp á gæðamikla þjálfun við fjölbreyttar aðstæður
  • Að vernda og styðja efnilega leikmenn með markvissum úrræðum (t.d. afrekshópar)
  • Að efla leikskilning og dýpri leikfræðilegan skilning á 11 manna knattspyrnu
  • Að vinna markvisst með tæknilega og taktíska þætti
  • Að auka líkamlegan styrk og fótavinnu leikmanna
  • Að leggja áherslu á liðleika, meiðslafyrirbyggjandi æfingar og endurheimt
  • Að innprenta gildi félagsins í framkomu, æfingum og keppni
  • Að skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að ná sínu besta
  • Að efla samstöðu, liðsheild og jákvæð samskipti
  • Að leggja áherslu á að fótbolti sé hluti af heilbrigðum lífsstíl
  • Að efla leiðtogahæfni innan hópsins og fela leikmönnum ábyrgðarhlutverk
  • Að sækja reglulega fræðslu og efla þjálfara innan flokksins

Samantekt

flokkur er lykilþrep í uppbyggingu leikmanna Ægis, þar sem færni, ábyrgð og metnaður fara saman. Markmiðið er ekki eingöngu árangur á vellinum, heldur að móta sterka einstaklinga og liðsheild sem standa fyrir gildi félagsins – innan vallar sem utan.

Skýringar

  • Æfingar verða úti á meðan veður leyfir og færast svo inn í sal með haustinu – fylgist með á Abler appinu.
  • Skráning fer fram á Abler
  • ATH: Birt með fyrirvara um breytingar