9. nóv 2015

| Garðar

Góðan dag,

Þór-ÆgirJako ehf. mun verða hér í Þorlákshöfn í dag út í Íþróttamiðstöð í dag milli 17:00-19:00 og afhenda þá galla sem eru tilbúnir. Eins munu þeir taka nýjar pantanir. Ef fólk kemst ekki í dag er alltaf hægt að fara til þeirra að Smiðjuvegi 74 (Gul gata) – 200 Kópavogi og ganga frá pöntun.

Varðandi stærðir þá kom upp smá óánægja með að ekki væru til hettupeysur á yngstu iðkendurnar.  Samkvæmt Jakó eru hettupeysurnar aldrei í minni stærðum en 128 eins og fram kemur í bæklingum frá þeim, en hægt er að fá samsvarandi polyestergalla í stærð 116, þannig að allir ættu að geta litið eins út.

Vonum að þetta geti gengið fyrir alla og sem flestir geti tryggt sér galla á næstunni. Jakó mun allavega bjóða gallana á tilboðsverði fram til jóla.