Undirbúningur fyrir næsta tímabil er hafinn hjá Ægi í Þorlákshöfn og sem hluti af starfinu er að semja við unga og efnilega leikmenn. Markmiðið er alltaf að reyna auka hlutfall uppalinna leikmanna í leikmannahópum félagsins. En þann 5.nóvember 2015 skrifuðu 3 ungir leikmenn undir tveggja ára samning við félagið. Þetta eru allt uppaldir leikmenn Ægis sem félagið bindur miklar vonir við að verði framtíðar leikmenn meistaraflokka á næstu árum. Þetta eru góðar fréttir fyrir félagið og gæfuspor.
Þessir leikmenn heita: Eiður Smári Guðmundsson f.´99, Guðmundur Brynjar Gylfason f.´99 og Sandra Dögg Þrastardóttir f.´99. Einnig framlengdi Þorkell Þráinsson f.’94, samningi sínum við félagið til næstu tveggja ára. Knattspyrnufélagið Ægir fagnar því að hafa náð samningum við þetta efnilega knattpyrnufólk og hlakkar til samstarfsins á næstu árum.
Við sama tækifæri skrifaði Guðmundur Garðar Sigfússon undir samning við félagið sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Guðmundur er fæddur 1983 og er frá Selfoss eins og Einar Ottó Antonsson sem ráðin var nýlega sem aðalþjálfari meistaraflokks. Hann hefur áður sinnt þjálfun yngri flokka á Selfossi, með Árborg og nú síðast með meistaraflokk KFR. Guðmundur er íþróttakennari og menntaður íþróttafræðingur. Félagið býður Guðmund Garðar hjartanlega velkomin til starfa og hlakkar til að starfa með honum og Einar Ottó að gera meistaraflokk Ægis enn betri á næstu misserum.
