Einar Ottó tekur við meistaraflokk Ægis

16. okt 2015

| Garðar

Einar Ottó tekur við meistaraflokk Ægis

Knattspyrnufélagið Ægir hefur komist að samkomulagi við Einar Ottó Antonsson um að taka við þjálfun meistarflokks karla næstu 2 tímabil. Einar Ottó er fæddur 1984 og hefur leikið nánast allan sinn feril með Selfoss við góðan orðstír. Hann hefur verið einn af lykilleikmönnum á Selfossi undanfarin ár en ætlar nú sölsa um og einbeita sér meira að þjálfun. Einar Ottó er íþróttakennari og menntaður íþróttafræðingur. Hann hefur einnig lokið öllum KSÍ þjálfaranámskeiðum nema efsta stiginu, þ.e. öllu nema KSÍ VI. Hann hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka á Selfossi með fínum árangri.
Stjórn Ægis býður Einar Ottó hjartanlega velkomin til starfa með ósk velfarnað í starfi. Einar Ottó tekur við meistaraflokk Ægis af Alfreð Jóhannssyni sem lét af störfum nú í haust og vill félagið þakka honum fyrir góð störf síðustu 5 ár. En undir stjórn Alfreðs náði félagið að komast upp í 2.deild og hefur leikið þar síðustu 3 tímabil. Alfreð mun starfa áfram hjá félaginu sem yfirþjálfari og þjálfari yngri flokka og mun reynsla hans nýtast félaginu þar áfram vel.

Einar Ottó