Ægismenn léku gegn Hetti á Egilsstöðum í dag. Það er óhætt að segja að liðið hafi gert góða ferð því það landaði 0:2 sigri. Mörk Ægis skoruðu Ramon á 45. mínútu og Aron Ingi á 64. mínútu.
Með sigrinum komust strákarnir
úr fallsæti og stukku upp fyrir Njarðvík og Tindastól. Næsti mótherji Ægis er einmitt Tindastóll en liðin mætast á Þorlákshafnarvelli næstkomandi laugardag.