Góður sigur meistaraflokks á Njarðvík í kvöld

9. júl 2015

| Garðar

Góður sigur meistaraflokks á Njarðvík í kvöld

Strákarnir í meistaraflokki gerðu góða ferð til Njarðvíkur í kvöld.  Þeir unnu sannfærandi 0:3 sigur og vippuðu sér þar með úr fallsæti upp í það sjöunda með 11 stig.  Will var svo sannarlega á skotskónum í kvöld en hann skoraði öll mörk liðsins, eins er ánægjulegt að sjá liðið halda hreinu.

Næst halda strákarnir á Seyðisfjörð og leika gegn Huginn, föstudaginn 17. júlí.

Will og Brenton eftir góðan sigur.

Will og Brenton eftir góðan sigur.