Lið Ægbis/Hamars í 6. flokki karla tók þetta sumarið þátt í Orkumótinu í Eyjum (áður Shellmótið). Þetta er án vafa stærsta og flottasta mót sem í boði er fyrir þennan flokk og gaman að félögin séu komin með pláss á því.
Farið var með tvö lið á mótið. Bæði stóðu sig vel innan sem utan vallar. Það sem mestu skiptir er að strákarnir skemmtu sér konunglega og náðu vel saman.

