7. flokkur karla á skemmtilegu Norðurálsmóti

29. jún 2015

| Garðar

7. flokkur karla á skemmtilegu Norðurálsmóti

7. flokkur karla hélt á Norðurálsmótið á Akranesi helgina 19. – 21. júní.  Mótið er það stærsta sem haldið er fyrir 7. flokk karla en um 1.500 strákar á aldrinum 6-9 ára tóku þátt í mótinu.

Sameiginlegt lið Ægis/Hamars tefldi fram fjórum liðum og stóðu þau sig öll með prýði.  Gaman er frá að segja að Ægir/Hamar3 var valið prúðasta liðið í keppni F liða og fengu strákarnir allir bolta að launum.

Auk þess að spila fótbolta fóru strákarnir í sund og skelltu sér á frábæra kvöldvöku. Norðuráls HÆ1 Norðuráls HÆ3 Norðuráls HÆ4WP_20150619_001 WP_20150619_005 WP_20150620_003 WP_20150620_005 WP_20150620_008 WP_20150621_002 WP_20150621_001 WP_20150621_005