Fótboltaskólinn hefur farið vel af stað þetta sumarið. Um 30 hressi krakkar æfa fótbolta af miklum móð. Öðru hverju er dagskráin brotin upp og í dag var hjóladagur hjá krökkunum. Við heimsóttum hesthúsin kíktum á útsýnispallinn og enduðum í fótbolta í skrúðgarðinum.
Aðstoðarmenn í sumar eru Viktor Karl og Sandra Dís úr vinnuskólanum og Will og Uchenna leikmenn meistaraflokks.

