Síðustu helgi héldu Fylkir, KR og FH vinamót fyrir þá stráka sem eru á yngra ári í 6. flokki hjá þessum félögum. Þar sem þetta eru stór félög fara þau aðeins með eldra ár á Shellmótið í eyjum og því hafa þau búið til verkefni sem þetta á hverju ári.
Í ár leituðu félögin eftir aðstöðu í Þorlákshöfn og unnu það í samstarfi við Ægi. Mikil ánægja var hjá liðunum með aðstöðuna hér og fengu allir sem komu að mikið hrós.
Á sunnudeginum var strákunum okkar boðið að vera með í mótinu og fóru margir skemmtilegir leikir fram. Eftir leiki sunnudagsins var svo smellt í eina hópmynd.
