Það hefur verið mikið að gera hjá yngri flokkum Ægis síðustu viku. 3. flokkur karla lék gegn Breiðablik á Þorlákshafnarvelli, 3. kvenna lék gegn Fram á Selfossvelli og 5. karla lék gegn Breiðablik á Þorlákshafnarvelli. Síðan lék 3. karla gegn Njarðvík á miðvikudag og 4. karla mætti Val að Hlíðarenda í gær. Allt voru þetta hörku leikir.
Framundan eru fjöldi leikja hjá öllum flokkum enda vorið og sumarið annasamasti tíminn hjá fótboltanum.
