Meistaraflokkur mætti KV í gærkvöldi á gervigrasvelli KR. Þetta var annar leikur liðsins á Íslandsmótinu en strákarnir töpuðu fyrir Huginn í fyrstu umferð og menn því þyrstir fyrstu stigin.
KV skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu en Uchenna jafnaði á 40. mínútu og staðan jöfn í hálfleik. Í síðari hálfleik skoraði Kristján Hermann Þorkellsson tvívegis, á 68. og 83. mínútu, og tryggði Ægismönnum fyrstu stigin þetta sumarið.
Ægir mætir KV aftur á mánudaginn í bikarkeppni KSÍ en sigur í þeim leik kemur liðinu í 32 liða úrslit keppninnar.
