Hið árlega sumarkaffi Ægis á morgun

22. apr 2015

| Garðar

Hið árlega sumarkaffi Ægis á morgun

Á morgun, sumardaginn fyrsta, mun unglingaráð Ægis halda hið árlega sumarkaffi í Ráðhúsinu.  Foreldrar yngri flokka hafa bakað af kappi og munu borð svigna undan kræsingum.  Foreldraráð hefur skipulagt uppákomuna og verður skemmtileg dagskrá í boði fyrir kaffigesti, söngur, dans og tónlist.

Nú er um að gera að fagna sumri með dásamlegum kaffiveitingum og styrkja um leið starf yngri flokka en ágóði sölunnar fer í kostnað við mót sumarsins.

Húsið opnar 14:30 og dagskráin 15:00.  Gjald fyrir fullorðna er 1.300, 7 – 12 ára borga sól600 og frítt er fyrir 6 ára og yngri.