Ægir hefur samið við Brentton Muhammad sem er 24 ára gamall markmaður en hann kemur frá London, Englandi.
Brentton hefur leikið á Englandi með yngri liðum ýmissa félaga, en undanfarin 4 ár í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og hlotið margar viðurkenningar. Hann er líka í landsliði „Antigua and Barbuda“ sem er eyja í Karabíska hafinu þar sem íbúafjöldinn er ríflega 80 þúsund.
Ægir bindur mikla vonir við að Brentton muni efla lið meistarflokks mikið fyrir átök sumarins og bjóðum hann velkominn til okkar.
Meistaraflokkur leikur gegn Sindra í dag og fer leikurinn fram á Selfossvelli. Flautað verður til leiks kl. 16:00.

