Meistaraflokkur lék gegn Njarðvík á fimmtudaginn í Reykjaneshöll. Njarðvík sigraði 2:1 eftir að hafa komist yfir með víti á 4. mínútu. Þorkell Þráinsson jafnaði á 19. mínútu en þetta er annað markið hans í síðustu tveimur leikjum mótsins. Njarðvíkingar komust síðan í 2:1 á 24. mínútu og urðu það úrslit leiksins.
Ægismenn eru núna í 3. sæti riðilsins með 6 stig og eiga einn leik eftir. Sá leikur er gegn Sindra og fer hann fram á Selfossvelli laugardaginn 18. apríl