Jafntefli í fyrsta leik meistaraflokks í Fótbolti.net mótinu

18. jan 2015

| Garðar

Jafntefli í fyrsta leik meistaraflokks í Fótbolti.net mótinu

Meistaraflokkur karla lék gegn Haukum á Fótbolti.net mótinu í gær.  Þetta var fyrsti leikur liðsins en leikið var í Hafnarfirði.

Leiknum lauk með jafntefli en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik.  Það var engin annar en Milan Djurovic sem skoraði mark Ægis en hann er mættur aftur í búning liðsins.

Næsti leikur meistaraflokks á mótinu er gegn Selfossi en hann fer fram á Selfossvelli laugardaginn 24. janúar og hefst kl. 12:00.Milan