Síðasta æfing 8. flokks fyrir jólafrí fór fram síðastliðinn fimmtudag. Að venju æfðu krakkarnir sig af kraftir en það varð heldur betur uppi fótur og fit þegar fimm hressir jólasveinar kíktu í heimsókn. Karlarnir æfðu með krökkunum í smá stund og færðu þeim síðan góðgæti í lok æfingar.
Jólasveinar í heimsókn hjá 8. flokki
21. des 2014
| Garðar
