Lokahóf meistaraflokks var haldið síðastliðinn laugardag í Versölum. Þar komu saman leikmenn meistaraflokks, Oldboys, starfsmenn félagsins og starfsmenn íþróttamiðstöðvarinnar. Dagskrá var með hefðbundnu sniði. Þjálfarar fóru yfir tímabilið og veittu viðurkenningar. Síðan gæddu gestir sér á veitingum frá Svarta Sauðnum og skemmtu sér fram á nótt.
Að þessu sinni var Róbert Rúnar Jack valin besti leikmaðurinn. Ágúst Freyr Hallsson var markahæstur og efnilegastur þetta tímabilið var Halldór Kristján Baldursson.
Einnig fengu fimm einstaklingar gullmerki Ægis fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Þetta voru Matti, Júlli, Eyþór Smári, Alli og Milos.

