Meistaraflokkur heimsækir Aftureldingu í lokaumferð Íslandsmótsins í dag. Það er mikil spenna á botni deildarinnar fyrir þessa síðustu umferð þar sem fimm lið geta fallið í 3. deild. Okkar menn eru í 8. sæti með 23 stig en þar á eftir koma Afturelding, Reynir S og Njarðvík með 21 stig. Á botninum situr síðan lið Völsungs með 19 stig. Nú er um að gera að fjölmenna í Mosfellsbæ og styðja strákana til sigurs og áframhaldandi veru í 2. deild.
Áfram Ægir