Meistaraflokkur karla tekur á móti ÍR á morgun. Strákarnir þurfa svo sannarlega á sigri að halda en þrjú stig fara langt með að tryggja sæti Ægis í 2. deild. ÍR situr í þriðja sæti og er í harðri baráttu við Gróttu um sæti í 1. deild.
Nú er um að gera að fjölmenna á völlinn og styðja strákana til sigurs í síðasta heimaleik tímabilsins.
Allir á völlinn – Áfram Ægir