A landslið karla mun æfa mánudag og þriðjudag á Þorlákshafnarvelli en æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir æfingaleik gegn Eistlandi á miðvikudag.
Æfingarnar hefjast báðar kl. 11:30 og er öllum velkomið að setjast í stúkuna og fylgjast með æfingunni. Við hvetjum alla áhugamenn um knattspyrnu til að kíkja á völlinn og taka út hvernig þeir bestu æfa.
