Ægismenn úr leik í Borgunarbikarnum

13. maí 2014

| Garðar

Ægismenn úr leik í Borgunarbikarnum

Axel stóð vaktina í markinu í kvöld

Axel stóð vaktina í markinu í kvöld

Meistaraflokkur mætti í kvöld Aftureldingu í Borgunarbikar og fór leikurinn fram á Þorlákshafnarvelli.  Það er skemmst frá að segja að gestirnir voru sterkari aðilinn í kvöld og sigruðu 0:4 eftir að hafa verið 0:2 yfir í hálfleik.  Okkar menn sköpuðu sér ekki mörg færi og ógnuðu markinu lítið í föstu leikatriðum.  Varnarleikurinn var ekki nógu sannfærandi en gestirnir léku vel og nýttu sín færi vel.

Það er gaman frá að segja að Þorlákshafnarpilturinn Axel Örn Sæmundsson lék allan leikinn í marki Ægis en hann er aðeins 16 ára.  Strákurinn stóð sig með prýði og ekki við hann að sakast í þeim mörkum sem liðið fékk á sig.

Næsta verkefni meistaraflokks er útileikur gegn Fjarðarbyggð næstkomandi laugardag.