Sigur og tap hjá 3. flokki karla gegn Gróttu

8. maí 2014

| Garðar

Sigur og tap hjá 3. flokki karla gegn Gróttu

WP_20140506_004 WP_20140506_0023. flokkur karla fékk Gróttu í heimsókn á Þorlákshafnarvöll á þriðjudag.  Leikið var við fínar aðstæður á grasi sem þykir ansi gott í byrjun maí.

A liðið lék hörku leik og var heldur sterkari aðilinn en mátti þola 0:1 tap eftir að hafa fengið á sig mark undir lok leiks.

B liðið átti nokkuð auðveldan dag og vann 3:1 sigur.  Strákarnir hefur átt að bæta við fleiri mörkum en sigurinn góður engu að síður.

3. flokkur leikur aftur í Þorlákshöfn á sunnudag þegar Breiðablik kemur í heimsókn.