Góðir leikir hjá 3. og 4. flokki karla um helgina

24. feb 2014

| Garðar

Góðir leikir hjá 3. og 4. flokki karla um helgina

A lið 3. flokks að gera sig klára fyrir leik

A lið 3. flokks að gera sig klára fyrir leik

Lið 3. og 4. flokks karla léku bæði á Faxaflóamótinu nú um helgina.

B lið 4. flokks spilaði á laugardaginn gegn Skallagrím og vann nokkuð auðveldan sigur 8:1.

Bæði lið 3. flokks léku á sunnudag.  A vann mjög sannfærandi sigur á liði Grindavíkur 7:0 þar sem gestirnir áttu fá færi.  B fékk Víði/Reyni í heimsókn og töpuðu 0:3 í baráttuleik þar sem gestirnir nýttu sín færi en ekki okkar menn.

Í öllum liðum voru strákarnir að leggja sig fram og helgin því góð á knattspyrnuvellinum.