Það var mikið fjör í Hamarshöll þessa helgina þegar haldið var þar Jólamót Kjörís. Þar mætti fjöldi liða til leiks í 5. – 7. flokki karla. Ægir og Hamar tefldu fram liðum í öllum flokkum og stóðu strákarnir sig mjög vel. Sambærilegt mót fyrir stelpur verður síðan haldið í byrjun nýs árs.
