Meistaraflokkur mætti Njarðvík á Þorlákshafnarvelli í dag. Ægir byrjaði leikinn af krafti og sótti stíft fyrstu mínúturnar. Hægt og bítandi náðu gestirnir að vinna sig inn í leikinn og meira jafnræði var með liðunm. En á 25. mínútu komust okkar menn yfir með laglegu skallamarki frá Kela. Eftir markið sóttu gestirnir af meiri krafti og uppskáru mörk á 34. og 44. mínútu og staðan í hálfleik því 1:2.
Í síðari hálfleik skiptust liðina á að sækja og má segja að leikurinn hafi verið nokkuð jafn. Ægismenn náðu að skapa sér nokkur ágæt færi en ekki tókst að koma boltanum í markið. Leiknum lauk því með 1:2 sigri Njarðvíkur.
Síðasti leikur meistaraflokks þetta tímabilið er gegn Aftureldingu og fer hann fram eftir viku í Mosfellsbæ.