Meistaraflokkur lék í kvöld gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Ekki ætlar okkur að ganga vel gegn Gróttu í sumar því strákarnir máttu þola 3:0 tap sem eru sömu tölur og fyrr í sumar á Þorlákshafnarvelli. En í dag áttu Ægismenn þó aðeins meira skilið út úr leiknum. Liðið var að skapa sér nokkur færi í báðum hálfleikjum og var að spila boltanum þokkalega en það voru hins vegar heimamenn sem sáu um að skora mörkin og það eru víst þau sem telja.
Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn HK og fer hann fram fimmtudaginn 5. september.