B lið 5. flokks í úrslitakeppni

27. ágú 2013

| Garðar

B lið 5. flokks í úrslitakeppni

B lið 5. flokks karla lék í gær gegn Breiðablik umspilsleik um að komast í lokaúrslit Íslandsmótsins.  Leikurinn fór fram í Hveragerði og endaði með sigri Blika 6:1.  Strákarnir voru þrátt fyrir úrslitin að spila vel og óheppnir að skora ekki fleiri mörk.  En Breiðablik var sterkari aðilinn og voru vel að sigrinum komnir.

Það er óhætt að segja að liðin í 5. flokki hafi verið að standa sig vel í sumar og verður gaman að fylgjast með þessum strákum í framtíðinni.

Strákarnir í B liðinu eftir leik gegn Reyni/Víði

Strákarnir í B liðinu eftir leik gegn Reyni/Víði