Meistaraflokkur rúllaði yfir Sindra

24. ágú 2013

| Garðar

Meistaraflokkur rúllaði yfir Sindra

Meistaraflokkur tók á móti Sindra á Þorlákshafnarvelli í dag.  Fyrir leikinn voru okkar menn í 10. sæti með 17 stig en Sindri sat í 8. sæti með 23.

Það var ljóst frá upphafi að Ægismenn ætluðu að selja sig dýrt og börðust fyrir öllum boltum.  Það var allt annar bragur á leik liðsins en í síðustu leikjum og sóknirnar voru snarpar og beittar.  Gestirnir spiluðu þó ágætlega en án þess að skapa sér færi, enda vörn okkar vel á verði.

Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 24. mínútu en þar var að verki Jóhann Óli sem var sprækur í leiknum.  Á næstu 14 mínútum fór Ægir á kostum og ekki stóð steinn yfir steini í vörn Sindra.  Tvö mörk frá Hauk Má og eitt frá Matejic komu á 33. 36. og  37. mínútu.  Staðan í hálfleik var því ansi vænleg, 4:0.

Í síðari hálfleik var nokkuð þægilegur fyrir okkar menn.  Liðið réð leiknum að mestu leiti og gestirnir sköpuðu lítið af færum.  Matejic bætti svo við fimmta marki Ægis og sínu öðru á 54. mínútu

Leikmenn meistaraflokks fögnuðu vel eftir leikinn

Leikmenn meistaraflokks fögnuðu vel eftir leikinn

.  Sindri náði aðeins að klóra í bakkann með marki á 68. mínútu en komust ekki lengra og því lauk leiknum með glæsilegum 5:1 sigri Ægis.

Með sigrinum færðumst við upp um eitt sæti, erum með 20 stig eins og Reynir en með betri markatölu.  Sindri er síðan aðeins þremur stigum ofar í 8. sæti.

Næsti leikur liðsins er næstkomandi fimmtudag gegn Gróttu á Gróttuvelli og hefst hann kl. 18:00.