Meistaraflokkur leikur gegn Sindra frá Hornafirði á Þorlákshafnarvelli í dag. Fyrri leik liðanna lauk með 1:1 jafntefli á Hornafirði og verður gaman að sjá hvort strákarnir ná ekki að landa góðum og nauðsynlegum heimasigri í dag.
Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetjum við alla til að skella sér á völlinn og hvetja strákana til sigurs.
