Tap á Dalvík í jöfnum leik

18. ágú 2013

| Garðar

Tap á Dalvík í jöfnum leik

Meistaraflokkur lék gegn Dalvík/Reyni í á Dalvík í dag.  Samkvæmt heimildum fréttaritara var leikurinn jafn og einkenndist af baráttu beggja liða.  Lítið var um opin færi enda varnarleikurinn þéttur báðu megin.  Eina mark leiksins skoruðu heimamenn á 50. mínútu en það hefði aldrei átt að standa því í aðdraganda þess slær leikmaður Dalvík/Reynis leikmann Ægis (Eyþór Smára) og því klárt leikbrot.  Dómarinn sá hins vegar ekki brotið og því stóð markið, ansi hart.

Niðurstaðan varð því 1:0 tap fyrir norðan.  Okkar menn sitja því í 10. sæti með 17 stig, 7 stigum á undan liðunum í fallsætunum.  Næsti leikur Ægis er næstkomandi laugardag gegn Sindra á Þorlákshafnarvelli.WP_20130627_001