3. flokkur karla lék í kvöld gegn Breiðablik á Þorlákshafnarvelli. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur hjá okkar strákum en Blikarnir voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og komust yfir strax á 5. mínútu. En á loka andartökum hálfleiksins jöfnuðu okkar menn.
Blikar komust aftur yfir strax í upphafi síðari hálfleiks en eftir það voru Ægir/Selfoss sterkari aðilinn á vellinum. Strákarnir náðu að jafna leikinn á 58. mínútu en Blikar komust yfir í þriðja skipti á 65. mínútu eftir fast leikatriði. Eftir það sóttu okkar menn af krafti en náðu ekki að skora þrátt fyrir mörg góð færi. Loka staðan því 2:3