Meistaraflokkur mætti liði Reynis frá Sandgerði á Þorlákshafnarvelli í kvöld. Fyrir leikinn voru lærisveinar Atla Eðvaldssonar einu stigi á eftir okkur og sigur því mikilvægur til að tryggja sæti fyrir ofan þá.
Það var klassískt sumarveður á vellinum í kvöld, súld og sunnan strekkingur. Ægir byrjaði á móti vindi sem var ekki verra enda erfitt að stjórna boltanum með vindinn í bakið á blautum vellinum. Jafnræði var með liðunum framan af hálfleiknum, okkar menn fengu ágætis færi án þess að koma boltanum í netið. En það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta markið eftir að aukaspyrna þeirra fór í stöng og leikmaður þeirra fylgdi vel á eftir. Okkar menn náðu að jafna strax þegar Milan skoraði á 28. mínútu. Það var allt útlit fyrir að staðan yrði jöfn í hálfleik en á 41. mínútu komust Reynismenn aftur yfir með marki úr glæsilegu skoti utan við teyg.
Í síðari hálfleik voru Ægismenn með vindinn í bakið og því líklegir til að ógna markinu af krafti. En of mikið af löngum sendingum litu dagsins ljós en þær skiluðu litlu við þessar aðstæður. Mesta hættan skapaðist í föstum leikatriðum en alltaf vantaði herslu muninn til að koma boltanum á markið. Gestirnir virkuðu frískti og áttu sóttu hratt þegar þeir unnu boltann. Það var síðan á 76. mínútu þegar Reynir komst í 1:3 eftir góða stungusendingu. Eftir það bætti Ægir í sóknina en vörn gestanna hélt og þeir bættu síðan við marki á 89. mínútu og lauk leiknum með 1:4 þeirra. Liðin höfðu því sætaskipti og erum við nú í 10. sæti með 17. stig
Næsti leikur Ægis er útileikur gegn Dalvík/Reyni sem fer fram næstkomandi sunnudag.