5. flokkur karla tók þá í N1-mótinu á dögunum sem er stærsta mót sem haldið er fyrir 5. flokk karla á hverju ári. KA heldur mótið á Akureyri með miklum myndar brag.
Á hverju ári er valið það lið sem þykir sína mestu prúðmennsku innan vallar sem utan. Að þessu sinni voru það lið okkar sem hlutu þessi verðlaun og eru strákarnir vel að þessari viðurkenningu komnir enda voru þeir til fyrirmyndar á mótinu. Til hamingju strákar.