Baráttustig í leik gegn Aftureldingu í kvöld

11. júl 2013

| Garðar

Baráttustig í leik gegn Aftureldingu í kvöld

Meistaraflokkur tók á móti Aftureldingu á Þorlákshafnarvelli í kvöld.  Fyrir leikinn sátu gestirnir á toppnum í 2. deild en okkar menn í 8. sæti.

Það var ljóst strax í upphafi að Afturelding er með vel spilandi lið en Ægismenn voru skipulagði og náðu að stoppa flestar sóknir gestanna.  En eftir nokkrar þungar sóknir komst Afturelding yfir á 23. mínútu.  Þá höfðu okkar strákar skapað sér lítið í sókninni og það var því kærkomið þegar Haukur Már jafnaði leikinn á 36. mínútu úr okkar fyrsta færi.

Í síðari hálfleik var meira jafnræði með liðunum þó gestirnir væru ívið hættulegri.  Ægismenn sköpuðu nokkrar álítlegar sóknir án þess þó að ógna marki gestanna að ráði.  Aco sem kom inná seint í fyrri hálfleik var frískur á vinstri kantinum og á 65. mínútu skoraði hann laglegt mark og kom okkur yfir.  Afturelding jafnaði aðeins þremur mínútum síðar eftir nokkrar útsölur í vörn okkar.

Það sem eftir lifði leiks skiptust liðin á að sækja og hefðum við hæglega getað stolið sigri þegar Matti og Mateja fengu sitt hvort dauðafærið í uppbótartíma.  En niðurstaðan 2:2 jafntefli sem verða að teljast nokkuð góð úrslit.

Næsti leikur Ægis er gegn Hetti,

Liðin klár fyrir leikinn í kvöld.

Liðin klár fyrir leikinn í kvöld.

laugardaginn 20. júlí og fer hann fram á Þorlákshafnarvelli.