Súld á Þorlákshafnarvelli

27. jún 2013

| Garðar

Súld á Þorlákshafnarvelli

Meistaraflokkur tók á móti Gróttu á Þorlákshafnarvelli í kvöld.  Þrátt fyrir súld mættu tryggir stuðningsmenn Ægis á völlinn til að styðja sína menn.

Fyrri hálfleikur var tíðindalítill.  Bæði lið vörðust vel og lítið var um færi, hálfleikstölur voru 0:0 enda jafnræði með liðunum.

Fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik virtust okkar menn ætla að setja aukinn kraft í leikinn og þurftu gestirnir að bjarga á línu þegar tvær mínútur voru liðnar af hálfleiknum.  En þá tók við afleitur kafli hjá Ægismönnum og á sjö mínútum skoraði Grótta þrjú mörk.  Öll voru mörkin í ódýrari kantinum, illa gekk að hreinsa frá marki og misskilningur milli leikmanna.  Eftir þetta sóttu okkar menn heldur meira en náðu ekki að nýta þau hálffæri sem sköpuðust.

Niðurstaðan var því 0:3 tap sem eru alls ekki ásættanleg úrslit og með sigrinum skaust Grótta upp fyrir okkur í töflunni.

Næsti leikur liðsins er gegn HK og fer hann fram þriðjudaginn 2. júlí á Kópavogsvelli.

Byrjunarlið Ægis í kvöld.

Byrjunarlið Ægis í kvöld.