Leikur glataðra færa gegn Dalvík/Reyni í dag

16. jún 2013

| Garðar

Leikur glataðra færa gegn Dalvík/Reyni í dag

Meistaraflokkur tók á móti Dalvík/Reyni á Þorlákshafnarvelli í dag.  Aðstæður voru eins og best verður á kosið, völlurinn flottur og veðrið skaplegt.

Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti og uppskáru mark strax á 7. mínútu þegar Matejic bætti einu á markareikninginn.  Ægismenn fengu nokkur fín færi í hálfleiknum til að bæta við marki en tókst ekki að nýta þau.

Í síðari hálfleik staðan svipuð, okkar menn sterkari og gestirnir  sköpuðu sér lítið af færum.  En 1:0 forusta er brothætt og á 71. mínútu náðu norðanmenn að skora mark úr einu að sínum fáu færum og lauk leiknum með 1:1 jafntefli.  Vissulega vonbrigði þar sem okkar menn voru sterkari aðilinn í leiknum og fengu fín færi til að komast í vænlega stöðu.

Eftir leikinn er Ægir með 7 stig í 9. sæti en það er stutt í 7. sæti og liðin í 4. – 6. eru aðeins með 10 stig og mikið eftir af mótinu.

Næsti leikur liðsins er gegn Sindra og fer hann fram á Hornafirði laugardaginn 22. júní.picture057