Meistaraflokkur mætti Reyni suður með sjó í kvöld. Eftir góðan sigur gegn Hamri í síðustu umferð voru menn vongóðir um hagstæð úrslit í Sandgerði en sú varð ekki niðurstaðan. Reynismenn unnu 2:1 sigur eftir að hafa komist í 2:0 en það var Matti sem skoraði mark Ægis á 91. mínútu. Eftir leikinn eru okkar menn sem fyrr með 6 stig en nú í 7. sæti. Næsti leikur liðsins er eftir rúma viku þegar Dalvík/Reynir kemur í heimsókn sunnudaginn 16. júní.
Tap gegn Reyni
6. jún 2013
| Garðar