Sumarblaði Ægis hefur nú verið dreift á heimili í Þorlákshöfn. Í blaðinu er að finna allar helstu upplýsingar varðandi starf félagsins í sumar. Má þar nefna æfingatíma flokka, leikjanámskeið, knattspyrnuskóla, smíðavöll, helstu mót og fleira.
Sumardagskrá hefst formlega mánudaginn 10. júní en þá taka gildi þeir æfingatímar sem auglýstir eru sem og leikjanámskeið.
